12 vikna sónar
Page 1 of 1
12 vikna sónar
Bara vika í 12 vikna sónar! Er svo spennt
Eru einhverjar búnar eða að fara í þessari viku???

silva- Posts : 15
Join date : 2015-09-05
Re: 12 vikna sónar
Ég fer á miðvikudaginní næstu viku og ég er að springa!
hopefully- Posts : 35
Join date : 2015-08-28
Re: 12 vikna sónar
Ég fer ekki fyrr en 30. september verð komin 13v og 3d þá það er svo fullbókað á Akureyri á þessum tíma og svo var eitthvað þannig að sá sem gerir þetta fór akkurat í 3 vikna frí á þessum tíma og mér var bara troðið inní en bíð ofurspennt 

betan2- Posts : 30
Join date : 2015-08-29
Re: 12 vikna sónar
Eg fer ekki fyrr en eftir rúmar 3 vikur. A tima i mæðravernd eftir 2 vikur, þa komin rúmar 11 vikur. Er það eðlilegur timi fyrir fyrsta tima i mæðravernd ?
Bumbubaun2016- Posts : 4
Join date : 2015-09-06
Re: 12 vikna sónar
Er að fara ekki á morgun heldur hinn, ég er meira stressuð en spennt! er ég ein um það ?
litlabaun- Posts : 9
Join date : 2015-08-28
Re: 12 vikna sónar
Ég er að fara á morgun klukkan 9, ég er bæði stressuð og spennt ! Ég verð gengin 12v og 3d á morgun. Í snemmsónar var ég sett 1.apríl, er smá spennt að sjá hvort ég verði ennþá í apríl eða hvort ég verði færð í mars hehe 

PollyTheDog- Posts : 1
Join date : 2015-09-19
Re: 12 vikna sónar
Ég fer í fyrstu mæðraskoðun í næstu viku og svo 12v sónar 6.okt verð þá komin 12v 4 daga. Ég er sett 15. Apríl samkvæmt snemmsónar en þegar ljósa talaði við mig í gegnum síma þá sagði hún 9 apríl.
waagebaun- Posts : 29
Join date : 2015-08-29
Re: 12 vikna sónar
Fer í sónar 29. sept þá komin sléttar 13 vikur, hefði viljað fá sónar fyrr því ég er um það bil eins óþolinmóð og hægt er að vera þessa dagana en það mun gleymast um leið
Fór í fyrstu mæðraskoðun 10. sept þá komin rúmar 10 vikur, er sett 5. apríl en mig grunar að mér verði flýtt þar sem hringurinn minn er ekki alveg týpískur, miklu styttri.

ML88- Posts : 4
Join date : 2015-08-30
Re: 12 vikna sónar
Ég fer eftir 3 vikur!
Ég er rosa spennt að sjá litla baby en ég græt úr kvíða að fara i þessa blóðprufu!
Ég fæ kviðakast við að sjá nálar og hvað þá að fara i blóðprufu.. Er rosa hrædd að það sé ekki tekið tillit til þess að vera ROSA hrædd við nálar .. Vegna þess að eg hef heyrt að ljósur sem eru á eldri kanntinum séu ekkert sérstaklega kurteisar við ungar mæður .. Líkt og ég , aðeins 20 ára .
Ég er rosa spennt að sjá litla baby en ég græt úr kvíða að fara i þessa blóðprufu!
Ég fæ kviðakast við að sjá nálar og hvað þá að fara i blóðprufu.. Er rosa hrædd að það sé ekki tekið tillit til þess að vera ROSA hrædd við nálar .. Vegna þess að eg hef heyrt að ljósur sem eru á eldri kanntinum séu ekkert sérstaklega kurteisar við ungar mæður .. Líkt og ég , aðeins 20 ára .
bumba20016- Posts : 8
Join date : 2015-08-28
Re: 12 vikna sónar
Jú ég er bæði stressuð og spennt!
En Bumbubaun2016 ég fór komin 10 vikur og það var í fínasta lagi. Ljósan talaði um að fyrsta þyrfti að vera einhverntímann fyrir 12 vikurnar eða komin 12 og sagði að ég hafi bara komið á fínum tíma
En Bumbubaun2016 ég fór komin 10 vikur og það var í fínasta lagi. Ljósan talaði um að fyrsta þyrfti að vera einhverntímann fyrir 12 vikurnar eða komin 12 og sagði að ég hafi bara komið á fínum tíma

hopefully- Posts : 35
Join date : 2015-08-28
Re: 12 vikna sónar
Oh ég öfunda ykkur svo mikið! Ég fer ekki í 12 vikna sónar fyrr en um miðjan okt (þá komin akkúrat 12 vikur) en ég hef ekki farið í neinn snemmsónar. Ég er svo sjúklega stressuð um að það geti verið eitthvað að :/ Vinkona mín á Íslandi sem er líka ólétt og komin aðeins lengra en ég fór alveg nokkrum sinnum í sónar fyrir 12 vikurnar.
Danabumba2016- Posts : 9
Join date : 2015-09-05
Re: 12 vikna sónar
Danabumba2016 wrote:Oh ég öfunda ykkur svo mikið! Ég fer ekki í 12 vikna sónar fyrr en um miðjan okt (þá komin akkúrat 12 vikur) en ég hef ekki farið í neinn snemmsónar. Ég er svo sjúklega stressuð um að það geti verið eitthvað að :/ Vinkona mín á Íslandi sem er líka ólétt og komin aðeins lengra en ég fór alveg nokkrum sinnum í sónar fyrir 12 vikurnar.
Er snemmsónar mjög dýr þarna úti eða erfitt að fá tíma? Ég myndi reyna að fara fyrst þú ert stressuð. Finnst hugarró vanmetin, sérstaklega á meðgöngu.
Georgina Chaos- Posts : 21
Join date : 2015-09-05
Re: 12 vikna sónar
ég fer í sónar 28 sept þá komin 12 vikur og 5 daga en ég hef ekki farið í mæðravernd ætlaði bara að pæla í því eftir 12 vikna sónarinn
redneck- Posts : 17
Join date : 2015-09-02
Re: 12 vikna sónar
Ég er að fara í 12 vikna sónar 30 september þá komin 12 vikur og 4 daga held ég. Ég er svaka spennt en ég er ekki búin að fara í mæðravernd og tékka á því eftir sónarinn. En ég fór sko í snemm sónar hjá kvensjúkdómalækninum mínum og samkvæmt því var ég sett 9 apríl
annak- Posts : 6
Join date : 2015-09-07
Re: 12 vikna sónar
Ég er að fara á morgun, ég er ótrúlega spennt
Ég verð þá komin 12v3d.
Hlakka til að "sjá" ykkur allar á Facebook síðunni!

Hlakka til að "sjá" ykkur allar á Facebook síðunni!
geirdis- Posts : 2
Join date : 2015-09-22
Re: 12 vikna sónar
Georgina Chaos wrote: Er snemmsónar mjög dýr þarna úti eða erfitt að fá tíma? Ég myndi reyna að fara fyrst þú ert stressuð. Finnst hugarró vanmetin, sérstaklega á meðgöngu.
Ég veit hreinlega bara ekki hvort það sé í boði :/ Ég ýtti eflaust ekki nóg á læknirinn minn í þessu, hefði getað frekjast meira. En núna eru 3 vikur í 12 vikna sónarinn og spurning hvort það borgi sig að fá að fara, ég prófa að hafa samband allavega. Takk

Danabumba2016- Posts : 9
Join date : 2015-09-05
Re: 12 vikna sónar
Ég fer ekki fyrr en 16.okt, þá komin 12v4d.
En hvað er annars gert í mæðravernd? Er þetta bara svona spjall eða hvað? Var að spá hvort ég ætti að fara í hana í sömu viku og ég fer í 12v sónar..
En hvað er annars gert í mæðravernd? Er þetta bara svona spjall eða hvað? Var að spá hvort ég ætti að fara í hana í sömu viku og ég fer í 12v sónar..
norman11- Posts : 11
Join date : 2015-08-30
Re: 12 vikna sónar
Hjá mér var þetta bara spjall og hún setti inn upplýsingar um mig í mæðravernd (og aðeins um makann). Svo vigtaði hún mig og nokkrum dögum seinna fór ég í blóðprufu og mætti með þvagprufu þá. Mér fannst mjög gott að komast í mæðraskoðun, þar gat ég spurt að öllu sem ég hef verið að velta fyrir mér og svona:)
hopefully- Posts : 35
Join date : 2015-08-28
Re: 12 vikna sónar
Í mæðravernd er farið yfir sjúkrasögu ykkar beggja, blóðþrýstingur mældur, þvagprufa og þegar lengra er komið er hlustað á hjartslátt, staðsetning fósturs athuguð og svo frv. Oftast bara létt og laggott
gott tækifæri til að spyrja spurninga

silva- Posts : 15
Join date : 2015-09-05
Page 1 of 1
Permissions in this forum:
You cannot reply to topics in this forum
|
|