Ég fór í snemmsónar áðan
4 posters
Page 1 of 1
Ég fór í snemmsónar áðan
Og þar sást greinileg þungun og lítið fóstur með hjartslátt en hann sagði að ég væri líklega ekki komin nema rétt tæplega 6 vikur!
Samkvæmt blæðingum ætti ég að vera komin 8 vikur á morgun
þetta eru alveg um 2 vikur afturá bak!
Ég sýndi honum mynd í símanum mínum af þungunarprófinu sem ég tók 24.ágúst og það var alveg blússandi jákvætt og honum fannst línan mjög dökk og greinileg þar sem 24.agúst ætti að vera ca 8 dagar frá getnaði..
En hann sagði að það kæmi líklega allt betur í ljós í 12v sónarnum sem hann sagði mér að fara í á milli 20.okt og 5.nóv.
Ég er eiginlega í pínu sjokki bara! Settur dagur var um miðjan apríl en er núna í byrjun maí

Re: Ég fór í snemmsónar áðan
Það er svo fúlt að lenda í svona seinkun. Biðin lengist, maður er enn á smá áhættutímabili og sérstaklega pirrandi hvað 12 vikna sónarinn verður langt í burtu. En til hamingju með hjartsláttinn, það er auðvitað alltaf best og skemmtilegast að sjá hann
Ég var einmitt með settan dag í lok mars skv. tíðahringnum og fór líka í snemmsónar þegar ég átti að vera komin tæpar 8 vikur, vantaði bara tvo daga en reyndist vera komin 6 vikur slétt. Þegar ég fór að spyrja út í þetta sagði hann að það væru +/- 3 dagar á þessari mælingu en að aldursmælingin væri nákvæmust svona snemma því fóstrið stækkar svo hratt fyrstu vikurnar að það er rúml. 2x stærra við 7 vikur en við 6. Ég fór aftur þegar ég átti að vera komin 8v. og 2d. skv. fyrri mælingunni hans og þá bætti hann við 3 dögum. Nú er ég sett 8. apríl. Verðuru ekki áfram í hópnum með okkur?

Last edited by Georgina Chaos on Tue Sep 08, 2015 4:04 am; edited 1 time in total
Georgina Chaos- Posts : 21
Join date : 2015-09-05
Re: Ég fór í snemmsónar áðan
Georgina Chaos wrote:
Verðuru ekki áfram í hópnum með okkur?
Jú ég hugsa að eg haldi mig hér áfram
En mér finnst þetta bara mjög spes þar sem ég er búin að vera með alveg frekar mikil einkenni í allavega 3 vikur og það er mjög spes ef ég er bara komin tæpar 6v... þá er eins og ég hafi fundið fyrst fyrir einkennum þegar ég var komin 2-3 vikur sem er eiginlega ekki séns
Þetta er alveg fjórða meðgangan mín þannig að ég þekki alveg einkennin og allt það... en þetta kemur allt í ljós, ég pantaði mér tíma aftur núna í lok sept og ætla að sjá hvernig þetta lítur út þá
Last edited by Admin on Tue Sep 08, 2015 1:47 am; edited 1 time in total
Re: Ég fór í snemmsónar áðan
mér var seinkað um 5 daga
Aprílkríli2016- Posts : 17
Join date : 2015-08-29
Re: Ég fór í snemmsónar áðan
Það verður gaman að vita hvað kemur úr seinni sónarnum. Það er svolítið sérstakt að byrja að finna einkennin svona snemma en ég hef alveg heyrt af því. Þegar ég varð ólétt í fyrra skiptið var bara einn dagur sem kom til greina og ég vaknaði ógeðslega aum í brjóstnum tveim dögum seinna.
Það virðist ekki svo óalgengt að konur lendi í svona seinkun. Hvernig er þetta með konur sem fara ekki í snemmsónar? Örugglega frekar fúlt að þurfa að mæta tvisvar í 12. vikna sónar því maður er ekki kominn nógu langt.
Aprílkríli2016 wrote:mér var seinkað um 5 daga
Það virðist ekki svo óalgengt að konur lendi í svona seinkun. Hvernig er þetta með konur sem fara ekki í snemmsónar? Örugglega frekar fúlt að þurfa að mæta tvisvar í 12. vikna sónar því maður er ekki kominn nógu langt.
Georgina Chaos- Posts : 21
Join date : 2015-09-05
Re: Ég fór í snemmsónar áðan
Georgina Chaos wrote:Hvernig er þetta með konur sem fara ekki í snemmsónar? Örugglega frekar fúlt að þurfa að mæta tvisvar í 12. vikna sónar því maður er ekki kominn nógu langt.
Úff ég vona að ég lendi ekki í því, ég fer einmitt ekki í snemmsónar heldur í sónar held ég á sama tíma og hnakkaþykktarmælingu sem verður á bilinu 8v-16v :/ (er útí Danmörku)
Danabumba2016- Posts : 9
Join date : 2015-09-05
Similar topics
» Snemmsónar
» Snemmsónar flýtt
» Snemmsónar í dag - segja hæ :)
» Búin í snemmsónar
» Snemmsónar nr.2 búinn :)
» Snemmsónar flýtt
» Snemmsónar í dag - segja hæ :)
» Búin í snemmsónar
» Snemmsónar nr.2 búinn :)
Page 1 of 1
Permissions in this forum:
You cannot reply to topics in this forum